HUGLEIÐING

Það skiptir máli hvað þú segir við sjálfan þig. Ertu uppbyggjandi eða ertu að rífa sjálfan þig niður?
Hér á eftir koma dæmi um niðurrifshugsanirNiðurrifshugsanir: Neikvæðar óhjálplegar hugsanir. og meira uppbyggjandi hugsanirUppbyggjandi hugsanir: Jákvæðar og styrkjandi hugsanir. í ákveðnum aðstæðum.

AÐSTÆÐUR

Að taka þátt í samræðum í hópi fólks

Niðurrifshugsanir Uppbyggjandi hugsanir
Röddin gefur sig. Ég get þetta eins og aðrir.
Ég segi einhverja vitleysu. Hinir eru jafn óöruggir og ég.
Ég verð slegin út af laginu. Ég er ekkert vitlausari en aðrir.
Það kemur allt öfugt út úr mér. Öllum þarf ekki að líka við mig.
Hinum finnst þetta ómögulegt. Ég verð ánægðari ef ég tala þegar mig langar.
Ég er ekkert að trana mérfram. Ég á sama rétt og aðrir á að láta í mér heyra.
Ég geri mig að fífli. Það er allt í lagi að vera kvíðinn.
Það líður yfir mig. Það veitir ekki af að þetta komi fram sem mig langar að segja.
Hinum þykir þetta vitlaust. Ég hef oft spurt ágætra spurninga þegar ég hef talað.
Hinir hafa meira vit á þessu. Ég bjarga mér út úr því ef ég mismæli mig.
Hinum finnst þetta leiðinlegt. Skyldi það verða forsíðufrétt í Mogganum ef ég segi vitleysu?
Hinir hafa ekki áhuga. Það fer mér vel að roðna.
Hinir nenna ekki að hlusta.
Kannski stama ég og hinir taka eftir því og hugsa eitthvað neikvætt um mig.
Kannski roðna ég. —Anna Valdimarsdóttir, 1999


VERKEFNIBlýantur

 

Verkefnin er yfirleitt hægt að fylla út og prenta, en EKKI að vista.
Til að vista útfyllt eyðublöð þarf að vera með nýjustu útgáfu af Foxit Reader.

 

PDF Uppbyggjandi hugsanir