Reykjalundur

 

 

Þegar eitthvað fer úrskeiðis trúir þunglynt fólk því oft að það eigi sök á atburðarásinni eða hún snúist persónulega um það.
Oftast er það þó þannig að við höfum ekkert haft með atburðina að gera.

 

DÆMI

 

  Sjálfvirk neikvæð hugsun:
Siggu líkar alls ekki vel við mig. Annars hefði hún ekki verið
með þessi ónot.

Skynsamlegt svar:
Ég er ekki sá eini sem Sigga er ónotaleg við. Hún er alltaf tæp
þegar hlutirnir ganga ekki vel og hún „urrar“ á alla sem eru í
kring. Ég hef séð það og heyrt. Hún kemst yfir þetta og biðst
kannski afsökunar.