Reykjalundur

 

 

Er það sem er að gerast í hinum stóra heimi að ala á þunglyndi þínu? Segir þú sjálfum þér að lífið sé ekki sanngjarnt og
fólk bannsettir ruddar? Það er vissulega sorglegt að ærin þjáning fyrirfinnst í veröldinni en í þunglyndi er tilhneiging til að taka
ástandið í heiminum nærri sér og mikilvægt að vera meðvitaður um það.

 

DÆMI

 

  Sjálfvirk neikvæð hugsun:
Þessi sjónvarpsþáttur um stöðu og aðstæður aldraðra var
óþægilegur. Lífið er grimmt. Það er ekki sanngjarnt.

Skynsamlegt svar:
Hlutirnir eru eins og þeir eru. Að leggjast í depurð bætir ekki úr
skák. Hvernig væri að heilsa upp á einhvern eldriborgara? Það
er nokkuð sem ég get gert.