Reykjalundur

 

 

Vertu sérstaklega á varðbergi gagnvart orðum eins og alltaf, aldrei, allir, enginn, allt og ekkert. Líklegast er að ástandið sé langt frá því að vera eins klippt og skorið eins og þessi orð gefa til kynna. Oftast á betur við: stundum, sumir og sumt.

 

DÆMI

 

  Sjálfvirk neikvæð hugsun:
Alltaf gengur allt á afturfótunum hjá mér.

Skynsamlegt svar:
Hvaða „allt“? Þetta eru ýkjur. Sumt gengur illa hjá mér eins og
hjá öðrum og annað gengur vel og allt þar á milli.
Hvenær „alltaf“? Stundum gengur illa hjá mér, kannski oft
með sum verkefni, –alveg eins og hjá öllum öðrum. Aðra daga
gengur sæmilega eða vel.