Reykjalundur

 

 

Þunglynt fólk hugsar oft á þann veg að fari eitthvað úrskeiðis muni hörmungar örugglega fylgja í kjölfarið. Ef dagurinn byrjar
t.d. illa getur hann bara versnað. Svona hugmyndir eru stundum spádómar sem rætast fyrir eigið afl. En hve líklegt er að það sem þú býst við muni gerast? Og hvað getur þú gert til að hafa áhrif á framvindu mála?

 

DÆMI

 

  Sjálfvirk neikvæð hugsun:
Ég náði ekki að ljúka öllum verkefnum í vinnunni í dag. Ég verð
ábyggilega rekinn.

Skynsamlegt svar:
Hvenær var einhverjum sagt upp í þessu fyrirtæki vegna þess
að hann hafði ekki tíma til að ljúka verki? Það er fullkomlega
eðlilegt að ná ekki að klára á tilsettum tíma þegar við vinnum öll
hér undir slíku álagi. Ef yfirmaðurinn gerir athugasemdir get ég
útskýrt stöðuna fyrir honum.