HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Forsíða » Meðferðarhandbók » 9. Kjarnaviðhorf og lífsreglur » Dæmi – Lífsreglurnar bak við sjálfvirkar, neikvæðar hugsanir

Dæmi – Lífsreglurnar bak við sjálfvirkar, neikvæðar hugsanir

Neikvæðar hugsanir Siggu snerust að miklu leyti um samskiptihelp_outline
Samskipti: Tjáskipti milli fólks, bæði með orðum og líkamstjáningu.
 hennar við annað fólk og kröfur hennar til sjálfrar sín. Hún túlkaði sífellt hegðun sína og annarra á neikvæðan hátt og sannfærðist þannig enn frekar um að hún væri einskis virði.

Sigga var margoft búin að leiðrétta slíkar bjaganir með því að bera kennsl á og skoða sjálfvirkar neikvæðar hugsanirhelp_outline
Sjálfvirkar neikvæðar hugsanir: Óboðnar, óæskilegar hugsanir sem hafa neikvæð áhrif á líðan.
 og finna rök gegn þeim. Samt sem áður komu þær jafnharðan aftur.

Hún prófaði því að skoða atburði og aðstæður sem kölluðu fram sterkar tilfinningar og notaði eftirfarandi aðferðir til að finna lífsreglur sínar og kjarnaviðhorf.

Nokkrar sjálfvirkar neikvæðar hugsanir sem komu oft upp í huga Siggu:

   DÆMI

  • Ég verð örugglega látin fara
  • Ég á ekki skilið að vera hér
  • Hann hefur engan áhuga á mér

Hún fann síðan rauðan þráð eða samhengi í þessum hugsunum þannig að hún gat lokið við eftirfarandi setningar:

  • Ég má ekki gera mistök
  • Ég verð alltaf að standa mig 100%
  • Ef ég stend mig ekki …þá verð ég látin fara
  • Ef ég stend mig ekki heima …þá missir Halli áhuga á mér

   VERKEFNI

Skip to content