Ein leið til að rjúfa vítahringinn er að breyta hegðun, til dæmis með því að auka virkni. |
Í upphafi þessarar bókar var fjallað um einkenni og afleiðingar þunglyndis. Skoðaðar voru ýmsar aðferðir til að auka virkni og farið var yfir hvernig hægt er að nota virknitöflu sem hjálpartæki til þess. Að því loknu var farið yfir vítahring þunglyndis, hvernig neikvæðar hugsanir og minni virkni tengjast þunglyndi. Þetta var meðal annars skoðað með fimm þátta líkaninu. Ein leið til að rjúfa vítahringinn er að breyta hegðun, til dæmis með því að auka virkni. Stundum þarf að leysa vandamál eða skipta verkefnum niður í viðráðanlega áfanga. Önnur leið er að breyta hugarfari, til dæmis með því að koma auga á sjálfvirkar neikvæðar hugsanir og bjagaðan hugsunarhátt og finna skynsamleg svör eða mótrök. Stundum þarf líka að vinna með sjálfsmyndina eða kjarnaviðhorfin og lífsreglurnar sem liggja að baki sjálfvirku neikvæðu hugsununum. Það er gert með því að tileinka sér ný og uppbyggileg kjarnaviðhorf og leita markvisst eftir rökum eða reynslu sem styðja þau. Einnig er mikilvægt að tileinka sér sjálfstyrk og ákveðni, geta sett mörk, sagt nei, hrósað eða tekið hrósi svo dæmi séu tekin.
VERKEFNI
Verkefnin er yfirleitt hægt að fylla út og prenta, en EKKI að vista.
Til að vista útfyllt eyðublöð þarf að vera með nýjustu útgáfu af Foxit Reader.