Ein leið til að skilja betur tilfinningar er að skipta þeim upp í eðlilegar og yfirþyrmandi tilfinningar. Eðlileg tilfinning samræmist aðstæðum vel, án tillits til þess hvort hún er þægileg eða óþægileg. Það er til dæmis eðlilegt að sakna vinar síns sem flytur í burtu en það væri ýkt viðbragð að leggjast í þunglyndi yfir missinum. Helstu neikvæðu tilfinningunum má skipta upp í mismunandi þætti sem innihalda tilfinningar sem eru mis sterkar eða frá því að vera eðlilegar upp í það að vera yfirþyrmandi:

Eðlilegar tilfinningar Yfirþyrmandi
Áhyggjur, hræðsla eða streita. Kvíði, angist eða skelfing.
Vonbrigði, leiði sorg eða söknuður. Depurð, vonleysi eða hjálparleysi.
Eftirsjá eða iðrun. Sektarkennd, samviskubit, skömm eða sjálfshatur.
Pirringur, óánægja, að mislíka eða gremjast. Yfirdrifin reiði, biturð, bræði, afbrýðisemi eða hatur.

 

Ekki má heldur gleyma jákvæðum tilfinningum svo sem ánægju, kímni, gleði og ást.