Reykjalundur

 

 

Þeir sem eru þunglyndir líta oft á erfiðleika sína þeim augum að erfiðleikarnir merki að þeir sjálfir séu einskis virði sem manneskjur. Ert þú að fella einhvern slíkan sleggjudóm? Þú ert lifandi manneskja samsett úr þúsundum hugsana, tilfinninga og
aðgerða. Það er ekki sanngjarnt af þér að dæma þig eftir einni slíkri hugsun, tilfinningu eða aðgerð. Þetta á sérstaklega við ef
þú ert þunglyndur. Þá ertu hlutdrægur og hefur tilhneigingu til að taka frekar eftir veikleikum þínum og göllum og líta framhjá
kostum þínum og styrkleikum.

 

DÆMI

 

  Sjálfvirk neikvæð hugsun:
Ég var svo pirruð út í börnin í morgun. Ég er slæm móðir og
vond manneskja.

Skynsamlegt svar:
Sú staðreynd að á vissum degi, á tilteknum tíma og við
ákveðnar aðstæður hafi ég verið pirruð þýðir ekki að ég sé
slæm móðir eða vond manneskja. Það er alls ekki sanngjarnt
að gera ráð fyrir að vera aldrei pirraður. Með því að rífa
mig niður er ég ekki að hjálpa mér við að vera góð við
krakkana þegar þau koma heim úr skólanum.