VITUND

Daglegar æfingar fyrir núvitund

Daglegar æfingar fyrir núvitund

Átta vikna námskeið með leiðbeiningum, hljóðupptökum og verkefnum.

Þessi bók er aðallega byggð á bókunum Mindfulness Based Cognitive Therapy for Depression, önnur útgáfa eftir Mark Williams, John Teasdale, Zindel Segal og Jon KabatZinn og The Mindful Way Workbook eftir Mark Williams, John Teasdale og Zindel Segal. Hægt er að nota bókina á margan hátt, sem námsefni á núvitundarnámskeiði, í einstaklingsmeðferð eða sem sjálfshjálparefni.

Höfundar fengu styrk frá Lýðheilsusjóði 2017 og 2018 til að vinna að þróun þessa efnis sem er að finna í bókinni og á heimasíðunni: https://ham.reykjalundur.is/nuvitund/ áður  www.fifill.is

Jon KabatZinn nýtti sér austurlenska menningu og núvitundar-hugleiðslu þegar hann árið 1979 þróaði nútíma aðferð til að vinna með streitu og langvinna verki sem fékk nafnið Mindfulness Based Stress Reduction (MBSR). Seinna nýttu Zindel Segal, John Teasdale og Mark Williams sér hugmyndir Jon KabatZinn en bættu inn hugrænni atferlismeðferð. Þeir töldu að með því að blanda saman vestrænum hugrænum aðferðum og austrænum æfingum væri orðið til það sem þyrfti til að brjóta vítahring endurtekins þunglyndis. Þeir þróuðu átta vikna námskeið í núvitund (MBCT) og rannsökuðu árangur þeirrar meðferðar. Seinna hafa fleiri haldið áfram að rannsaka árangur meðferðarinnar.

Með núvitund er átt við að taka eftir með ásetningi og vera meðvitaður um það sem er að gerast hér og nú án þess að dæma. Að dvelja í andartakinu þar sem þú ekki aðeins mætir tilfinningunum heldur viðurkennir þær. 

Þunglyndi, óhamingja, örmögnun og álag hafa það sameiginlegt að ræna okkur orku og gera lífið litlausara. Núvitund getur hjálpað okkur við að endurheimta líf okkar. Hvernig getum við byrjað?

Höfundar

Anna Kristín Þorsteinsdóttir

Hjúkrunarfræðingur og kennari

Anna Kristín hefur starfað á Reykjalundi í þverfaglegri endurhæfingu frá árinu 1989. Hún er hjúkrunarfræðingur og kennari með mikla reynslu af meðferðarvinnu og fræðslu. Aðalmeðferðarform er hugræn atferlismeðferð og núvitund við kvíða, þunglyndi og lágu sjálfsmati. Hún lauk námi í hugrænni atferlismeðferð 2000, diplómanámi í geðhjúkrun 2006 og M.Ed. prófi í Náms og kennslufræði 2013. Áhersla hennar í náminu var m.a. á núvitund og fjallaði lokaverkefnið hennar um þróun eftirfylgnihópa byggða á núvitund. Starfendarannsókn í enduræfingu. Auk þess hefur hún sótt fjölmörg námskeið tengd HAM, áföllum og núvitund. Anna Kristín tók þátt í að þróa eftirfylgdarnámskeið í núvitund fyrir skjólstæðinga Reykjalundar og er leiðbeinandi á núvitundarnámskeiðum.

Jóhanna Kristín Steingrímsdóttir

EMDR þerapisti og hjúkrunarfræðingur

Jóhanna starfar á EMDR stofunni. Hún er hjúkrunarfræðingur með mikla reynslu af meðferðarvinnu einstaklinga vegna áfalla, þunglyndis, kvíða og lágs sjálfsmats. Jóhanna hefur sérhæft sig í EMDR meðferð, lauk EMDR þjálfun árið 2013 og hlaut EMDRIA viðurkenningu sem EMDR viðurkenndur meðferðaraðili árið 2018. Hún hefur einnig verið virk í að sækja endurmenntun hvað varðar meðferð einstaklinga með flókna og endurtekna áfallasögu. Jóhanna hefur verið í handleiðslu á EMDR vinnu sína frá árinu 2013. Jóhanna notar einnig hugræna atferlismeðferð í sínu starfi. Hún lauk árs námi í hugrænni atferlismeðferð 2007 á vegum Félags um hugræna atferlismeðferð í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands og Oxford Cognitive Therapy Centre. Jóhanna hefur starfað á geðheilsusviði Reykjalundar þar sem hún tók þátt í að þróa eftirfylgdarnámskeið í núvitund fyrir skjólstæðinga og er leiðbeinandi á núvitundarnámskeiðum.

Inga Hrefna Jónsdóttir

Sálfræðingur – sérfræðingur í klínískri sálfræði

Inga Hrefna hefur starfað á Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð SÍBS í fullu starfi frá árinu 2000 og er forstöðusálfræðingur þar. Hún er sérfræðingur í klínískri sálfræði og hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð (HAM) með áherslu á þunglyndi, kvíða, lágt sjálfsmat, áföll og núvitund. Hún lauk tveggja ára námi í HAM 2001 og tveggja ára HAM-handleiðslunámi 2005. Inga Hrefna kenndi klíníska sálfræði í BS náminu í HR í tvo vetur, er handleiðari nema í lokaverkefnum, stundakennari og handleiðari í HAM náminu sem er á vegum Félags um hugræna atferlismeðferð í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands og Oxford Cognitive Therapy Centre. Hún var umsjónarmaður námsins frá 2002-2008. Inga Hrefna tók þátt í að þróa eftirfylgdarnámskeið í núvitund fyrir skjólstæðinga Reykjalundar og er leiðbeinandi á núvitundarnámskeiðum.

Skip to content