Hugræn atferlismeðferð er sálfræðimeðferð sem hefur gefist vel við þunglyndi. Í meðferðinni er unnið að því að hafa áhrif á líðan og draga úr þunglyndiseinkennum með því að breyta hugarfari og hegðun. Markmiðið er að draga úr neikvæðum hugsunum og auka virkni. Hugræn atferlismeðferð fer venjulega fram í nánu samstarfi við meðferðaraðila, þótt skjólstæðingurinn taki smám saman sjálfur meiri ábyrgð á eigin bata með stuðningi og aðstoð meðferðaraðilans. Í vægu þunglyndi er hægt að nýta sér hugræna atferlismeðferð með tiltölulega litlum stuðningi meðferðaraðila.
Markmiðið er að draga úr nei- kvæðum hugsunum og auka virkni. |
Í alvarlegu þunglyndi ætti hins vegar alltaf að leita aðstoðar fagfólks og ræða m.a. möguleika á lyfjameðferð. Í meðaldjúpu þunglyndi geta lyf hjálpað mörgum við að rjúfa vítahringinn og þegar líðanin batnar er auðveldara að takast sjálfur á við þunglyndiseinkennin t.d. neikvæðar hugsanir og óvirkni. Sumir vilja ekki nota lyf nema í ítrustu neyð af ýmsum ástæðum. Ljóst er að þunglyndislyf gagnast fólki misvel auk þess sem aukaverkanir gera suma fráhverfa lyfjameðferð. Oft geta þessi meðferðarform þ.e. hugræn atferlismeðferð, lyfjameðferð og markviss þjálfun samtímis bætt heildarárangur meðferðarinnar.