HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Forsíða » Meðferðarhandbók » 9. Kjarnaviðhorf og lífsreglur

9. Kjarnaviðhorf og lífsreglur

Í síðasta kafla vorum við að skoða sjálfvirkar neikvæðar hugsanirhelp_outline
Sjálfvirkar neikvæðar hugsanir: Óboðnar, óæskilegar hugsanir sem hafa neikvæð áhrif á líðan.
, en hvaðan koma þær og hvað veldur því að við hugsum svona? Komið hefur í ljós að rótgróin viðhorf stjórna að miklu leyti þessum hugsunum.

Þessi viðhorf hafa búið um sig í hugarheimi okkar á löngum tíma og mótast af ákveðnum skoðunum eða sannfæringu sem kölluð eru kjarnaviðhorfhelp_outline
Kjarnaviðhorf: Viðhorf eða grunntrú sem við höfum til okkar sjálfra, annarra og lífsins í heild.
.

Ólánið sem elti mig
orðið hefði minna,
gæti maður sjálfan sig
séð með augum hinna.

—Kristján Ólason

Skip to content