Það er mismunandi hvaða leiðir henta hverjum og einum til að viðhalda bata og góðri geðheilsu.

Hér á eftir koma nokkrar aðferðir sem hafa gefist vel.

 

  Að sigra heiminn

Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.

(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði).

Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.

—Steinn Steinarr