BakslögBakslag/hrösun: Afturkippur, fara aftur í sama farið. eru eðlilegur hluti af bataferli.Bataferli: Taka framförum í átt að bata.

Gott er að hafa í huga að það er ekkert óeðlilegt þó líðanin versni aftur tímabundið. Sveiflur í líðan er hluti af því að vera mannlegur.

Stundum erum við döpur eða í óstuði og stundum erum við glöð og ánægð. Það er hins vegar mjög mikilvægt fyrir þig að vera meðvitaður um hættumerkin þín og vita hvað þú þarft að varast til að fyrirbyggja versnandi líðan.

 

  „Listin að lifa felst í því að
taka eftir þeim tækifærum
sem okkur gefast og grípa
allt það góða sem við
mögulega getum“.


—William James