DÆMI
Sigga hefur verið boðið í samkvæmi. Tilhugsunin veldur honum hugarangri. Hann er sannfærður um að hann geti ekki lengur talað við fólk og hann muni ekki skemmta sér neitt. Þetta gerir hann leiðan og dapran því hann telur að hann muni missa tengsl við vini sína og kunningja ef hann tekur ekki þátt í félagslífi þeirra. Við skulum sjá hvernig Siggi prófar hugmyndir sínar. |
Ég mun ekki geta blandað geði og talað við neinn í boðinu. Þetta verður óþægilegt og leiðinlegt.
Áður fyrr naut ég þess að fara í boð og hafði gaman af að hitta fólk. Vissulega hef ég ekki haft eins mikla ánægju af því eftir að ég varð svona þunglyndur. Samt hef ég getað notið þess stöku sinnum þrátt fyrir líðan mína. Vinir mínir og kunningjar verða þarna og þeir vita hvernig ég hef haft það og ætlast ekki til þess að ég haldi uppi fjörinu. Ef ég fer ekki gæti ég misst af tækifæri til að eiga ánægjulega stund með vinum mínum.
Ég fer og athuga hvað gerist. Ég reyni að halda mig nálægt fólki sem ég þekki til að byrja með. Reyni að slaka á og hlusta á hvað það hefur að segja.
Niðurstaðan: Ég hafði ekki gaman af þessu. Fór snemma. Hvað fór úrskeiðis? Ég var upptekinn af því allt kvöldið hvað aðrir virtust glaðir og ánægðir og sagði sjálfum mér stöðugt hvað allt væri öðruvísi hjá mér. Ég var svo upptekinn af að hugsa um sjálfan mig að ég gat ekki einbeitt mér að neinu sem var að gerast í kringum mig.
Ný leið: Næst þarf ég að leggja mig betur fram við að svara neikvæðum hugsunum mínum fyrirfram og halda þeim í burtu með því að einbeita mér að einhverju öðru þegar ég kem á staðinn. Ég gæti komið því í kring að hitta vini mína við auðveldari kringumstæður til að æfa mig. Ég get byrjað á því að hringja í Gunna og spyrja hvort hann sé til í að koma í bíó.
Upprunaleg forspá mín var rétt, en það var aðallega vegna þess að ég var svo upptekinn af mínum eigin neikvæðu hugsunum.
Þrátt fyrir það hafa tveir vinir mínir haft samband við mig eftir þetta. Eitt misheppnað kvöld þýðir ekki að ég glati tengslum við alla.
Í þessu dæmi rættist neikvæð forspá. Engu að síður kom í ljós líkleg skýring á því hvers vegna þannig fór og hægt var að benda á leiðir til að forðast það í framtíðinni. Oft og einatt kemur þó í ljós að þær neikvæðu hugmyndir sem við gerum okkur fyrirfram um hlutina reynast ekki réttar. Prófaðu bara!