Ef þú vilt ná tökum á tilfinningum þínum, þarft þú að geta borið kennsl á þær tilfinningar sem þú finnur fyrir frá degi til dags.
Ekki má gleyma jákvæðum tilfinningum svo sem ánægju, kímni, gleði og ást. |
Það er ekki einfalt að greina tilfinningar. Þú getur fundið fyrir síþreytu án þess að gera þér grein fyrir að þú ert í raun þunglyndur. Einnig getur verið að þér finnist þú vera taugaveiklaður og ekki í jafnvægi en ert í raun kvíðinn. Þunglyndi og kvíði, reiði, skömm og sektarkennd eru mjög algeng tilfinningaleg vandamál.
Tilfinningum fylgja bæði líkamleg einkenni og hugsanir. Til dæmis gætir þú skoðað hvaða hugsanir fara í gegnum hugann og hverju þú finnur fyrir í líkamanum þegar þú ert reiður. Margir finna fyrir spennu í líkamanum þegar þeir eru reiðir, hjartsláttur eykst, roði færist yfir andlitið og öndunin verður hraðari.
Listinn sem hér fer á eftir sýnir mismunandi tilfinningar sem þú getur upplifað frá degi til dags. Þetta er ekki tæmandi listi og
því er möguleiki fyrir þig að bæta við hann því sem þér finnst vanta. Þessi listi hjálpar þér til þess að sundurgreina tilfinningar
þínar nákvæmar en bara í „góðar eða vondar”. Taktu eftir því að tilfinningum er venjulega lýst með einu orði og á bak við þær eru ákveðnar hugsanir og líkamsviðbrögð.
Listi yfir mismunandi tilfinningar
Kvíði |
Þunglyndi Leiði Söknuður Örvænting Sorg Sárindi Vonbrigði Vonleysi Óhamingja Depurð Höfnun Vanmáttur Minnimáttarkennd Einmanaleiki Hjálparleysi |
Samviskubit Sektarkennd Skömm Niðurlæging Hneykslun Eftirsjá Iðrun Sjálfshatur Vanvirðing |
Hatur Reiði Öfund Afbrýðisemi Vantraust Fyrirlitning Pirringur Spenna Ofsareiði Ergelsi Æsingur Óánægja Gremja Biturð Bræði |
Ánægja Ástúð Kátína Hamingja Gleði Ást Von Eftirvænting Stolt Æðruleysi Hressileiki Tilhlökkun Góð samviska Kímni Værð Léttir |
Hugrekki Öryggi Ró Jafnvægi Samúð Samkennd Galsi Traust Virðing Kærleikur Léttleiki Kjarkur Feginleiki Þakklæti |
Þegar þú hefur lært að bera kennsl á tilfinningar þínar þá getur þú sett þér markmið til að breyta því sem þú vilt. Síðan getur þú skráð niður hvernig þér miðar. Það gerir þér líka mögulegt að velja aðferðir sem geta dregið úr styrk tiltekinna tilfinninga.
Þindaröndun getur hjálpað þeim sem er kvíðinn til að draga úr spennu, en hún hjálpar ekki þeim sem er þunglyndur til að draga úr depurð. |
Ef þú átt í vandræðum með að skynja hvaða tilfinningar eru við völd, taktu þá eftir hvort þú hefur einhver líkamleg einkenni,
t.d. getur spenna í öxlum bent til þess að þú sért spenntur eða kvíðinn og drungi getur bent til þunglyndis eða vonleysis.
Önnur aðferð er að athuga hvort þú tekur eftir þrenns konar tilfinningum hjá þér yfir daginn. Ef þetta reynist erfitt, er hægt
að velja þrjár tegundir af tilfinningum af listanum og skrá niður aðstæður úr fortíðinni sem eiga við tilteknar tilfinningar.