Það skiptir miklu máli hvernig við metum okkar eigin hugsanir.
Sumir trúa að það sé gagnlegt að hafa áhyggjur, grufla og vera stöðugt á varðbergi.
Dæmi um þannig hugsanir eru:
DÆMI
- „Ef ég fer vel í gegnum áhyggjur mínar verð ég betur undirbúinn ef allt fer á versta veg“.
- „Ef ég fer vel í gegnum hugsanlegar hættur, verð ég öruggari ef ég lendi sjálfur í þeim“.
- „Ef ég hugsa nógu mikið um af hverju mér líður svona þá mun ég finna svör við því og það hjálpar mér að leysa
- vandann“.
- „Ég verð að hafa stjórn á hugsunum mínum því annars gerist eitthvað slæmt“.
Aðrir trúa að þeir hafi ekki stjórn á hugsunum sínum eða að þær séu hættulegar, mikilvægar eða feli alltaf í sér einhverja djúpa merkingu. Dæmi um slík viðhorf geta verið:
DÆMI
- „Ég hef enga stjórn á áhyggjunum/gruflinu“.
- „Slæmar hugsanir geta látið mig gera slæma hluti“.
- „Úr því að ég er að hugsa þetta þá hlýtur það að vera rétt“.
Það er ekki bara innihald hugsana okkar sem skiptir máli heldur líka viðhorf okkar til þeirra.