HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Forsíða » Meðferðarhandbók » 7. Að breyta neikvæðum hugsunarhætti » Hvaða afleiðingar hefur að hugsa á þennan hátt?

Hvaða afleiðingar hefur að hugsa á þennan hátt?

Markmið þeirra sem nýta sér nálgun hugrænnar atferlismeðferðar til að ná tökum á þunglyndi eru að ná betri líðan. Er núverandi hugsunarháttur þinn hjálplegur til þess að ná því fram sem þú stefnir að eða stendur hann í vegi fyrir þér?

   DÆMI

Sjálfvirk neikvæð hugsun:

  • Þetta er vonlaust. Ég á að geta staðið mig betur en þetta eftir allt saman. Ég get aldrei komist upp á lag með að finna mótrökhelp_outline
    Mótrök: Rök á móti, t.d. neikvæðum hugsunum.
     við neikvæðum hugsunum mínum.

Skynsamlegt svar:

  • Það sem ég vil, er að komast yfir þunglyndið. Þessi hugsun er ekki hjálpleg til þess. Hún skapar bara verri líðan. Það gerir ekkert gott að ég segi sjálfum mér að ég ætti að standa mig betur. Það sem ég þarf er æfing. Ef ég held áfram að rífa mig niður endar með því að ég gefst upp í stað þess að æfa mig.
Skip to content