Einblínir þú til dæmis á allt það sem hefur farið úrskeiðis yfir daginn og gleymir og afskrifar annað sem þér hefur tekist og þú hefur haft ánægju af?
DÆMI
Sjálfvirk neikvæð hugsun:
- Þetta var alveg hræðilegur dagur.
Skynsamlegt svar:
- Bíddu nú við. Ég var of seinn á fund og var ósammála dóttur minni, en vinnan gekk yfirleitt vel í dag og ég hafði gaman af bíómyndinni sem ég sá í kvöld. Þegar á allt er litið var þetta sem sagt ekki slæmur dagur.
Að muna bara eftir slæmu hlutunum er hluti af þunglyndinu. Gættu þín á því.
