HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Tilfinningarök

Við ruglum saman staðreyndum og hvernig okkur líður. Ef okkur líður óþægilega í samskiptum við einhvern, er niðurstaða okkar að hann sé ósanngjarn við okkur og erfiður í samskiptum. Ef við höfum sektarkennd, hljóta hlutirnir að vera okkur að kenna. Ef við finnum til ábyrgðartilfinningar, hljótum við að bera ábyrgðina. Ef okkur líður eins og okkur hafi mistekist, hlýtur okkur að hafa mistekist.

Ef mér líður eins og gíraffa, er ég þá gíraffi?

   DÆMI

Siggu fannst eins og Halli væri búinn að hafna sér. Henni fannst hann ekki vera jafn hrifinn af sér og áður. Hún var döpur vegna þess. Staðreyndirnar voru aðrar: Halli var glaður yfir veislunni, hann tók eftir hárinu, hann spurði hvort hún vildi fara út á lífið. Þetta voru allt viðurkenningar. En Siggu leið öðruvísi enda sannfærð um annað.
Skip to content