HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Forsíða » Meðferðarhandbók » 4. Tilfinningar » Að bera kennsl á og meta tilfinningar

Að bera kennsl á og meta tilfinningar

Ef þú vilt ná tökum á tilfinningum þínum, þarft þú að geta borið kennsl á þær tilfinningar sem þú finnur fyrir frá degi til dags.

Það er ekki einfalt að greina tilfinningar. Þú getur fundið fyrir síþreytu án þess að gera þér grein fyrir að þú ert í raun þunglyndur. Einnig getur verið að þér finnist þú vera taugaveiklaður og ekki í jafnvægi en ert í raun kvíðinn. Þunglyndi og kvíði, reiði, skömm og sektarkennd eru mjög algeng tilfinningaleg vandamál.

Tilfinningum fylgja bæði líkamleg einkenni og hugsanir. Til dæmis gætir þú skoðað hvaða hugsanir fara í gegnum hugann og hverju þú finnur fyrir í líkamanum þegar þú ert reiður. Margir finna fyrir spennu í líkamanum þegar þeir eru reiðir, hjartsláttur eykst, roði færist yfir andlitið og öndunin verður hraðari.

Ekki má gleyma jákvæðum tilfinningum svo sem ánægju, kímni, gleði og ást.

Hvernig berð þú kennsl á tilfinningar þínar?

Listinn sem hér fer á eftir sýnir mismunandi tilfinningar sem þú getur upplifað frá degi til dags. Þetta er ekki tæmandi listi og því er möguleiki fyrir þig að bæta við hann því sem þér finnst vanta. Þessi listi hjálpar þér til þess að sundurgreina tilfinningar þínar nákvæmar en bara í „góðar eða vondar”. Taktu eftir því að tilfinningum er venjulega lýst með einu orði og á bak við þær eru ákveðnar hugsanir og líkamsviðbrögð.

  LISTI YFIR MISMUNANDI TILFINNINGAR

Kvíði

Ótti

Áhyggjur

Hræðsla

Óöryggi

Skelfing

Taugaveiklun

Skelkun

Angist

Streita

Óróleiki

Þunglyndi

Leiði

Söknuður

Örvænting

Sorg

Sárindi

Vonbrigði

Vonleysi

Óhamingja

Depurð

Höfnun

Vanmáttur

Minnimáttarkennd

Einmanaleiki

Hjálparleysi

Samviskubit

Sektarkennd

Skömm

Niðurlæging

Hneykslun

Eftirsjá

Iðrun

Sjálfshatur

Vanvirðing

Hatur

Reiði

Öfund

Afbrýðisemi

Vantraust

Fyrirlitning

Pirringur

Spenna

Ofsareiði

Ergelsi

Æsingur

Óánægja

Gremja

Biturð

Bræði

Ánægja

Ástúð

Kátína

Hamingja

Gleði

Ást

Von

Eftirvænting

Stolt

Æðruleysi

Hressileiki

Tilhlökkun

Góð samviska

Kímni

Værð

Léttir

Hugrekki

Öryggi

Jafnvægi

Samúð

Samkennd

Galsi

Traust

Virðing

Kærleikur

Léttleiki

Kjarkur

Feginleiki

Þakklæti

Þegar þú hefur lært að bera kennsl á tilfinningar þínar þá getur þú sett þér markmið til að breyta því sem þú vilt. Síðan getur þú skráð niður hvernig þér miðar. Það gerir þér líka mögulegt að velja aðferðir sem geta dregið úr styrk tiltekinna tilfinninga.

Þindaröndun getur hjálpað þeim sem er kvíðinn til að draga úr spennu, en hún hjálpar ekki þeim sem er þunglyndur til að draga úr depurð.

Ef þú átt í vandræðum með að skynja hvaða tilfinningar eru við völd, taktu þá eftir hvort þú hefur einhver líkamleg einkenni, t.d. getur spenna í öxlum bent til þess að þú sért spenntur eða kvíðinn og drungi getur bent til þunglyndis eða vonleysis.

Önnur aðferð er að athuga hvort þú tekur eftir þrenns konar tilfinningum hjá þér yfir daginn. Ef þetta reynist erfitt, er hægt að velja þrjár tegundir af tilfinningum af listanum og skrá niður aðstæður úr fortíðinni sem eiga við tilteknar tilfinningar.

Skip to content