Við sjáum og skiljum hlutina í svart-hvítu þar sem enginn meðalvegur er til. Allt er annað hvort algott eða alslæmt, ómögulegt eða frábært. Ef frammistaða
Frammistaða/færni: Það hvernig einhver stendur sig. Hvernig gengur að gera hlutina. okkar er eitthvað minna en fullkomin getur hún ekki verið annað en misheppnuð.
Þessi hugsunarháttur er undirstaða kröfunnar um fullkomnun. Við óttumst öll mistök, því við að gera mistök finnst okkur við vera misheppnuð og einskis virði. Þessi hugsunarháttur er einnig mjög óraunsær. Til að mynda er varla hægt að finna nokkra manneskju sem er algjörlega heimsk, með öllu ljót og misheppnuð. Ekkert gólf er heldur alveg hreint og varla finnst sú völundarsmíð sem ekki má betrumbæta.
Allt-eða-ekkert hugsunarháttur getur aldrei verið hjálplegur eða hvetjandi. Þegar við túlkum reynslu okkar með því að þröngva öllu sem okkur varðar í andstæða flokka eða allt-eða-ekkert hólf, er líklegt að það valdi vanlíðan. Hvað svo sem við gerum mun okkur aldrei takast að standast þessar ýktu væntingar.
