HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Forsíða » Meðferðarhandbók » 7. Að breyta neikvæðum hugsunarhætti » Er ég að velta mér upp úr því hvernig hlutirnir ættu að vera?

Er ég að velta mér upp úr því hvernig hlutirnir ættu að vera?

Er það sem er að gerast í hinum stóra heimi að ala á þunglyndi þínu? Segir þú sjálfum þér að lífið sé ekki sanngjarnt og fólk bannsettir ruddar? Það er vissulega sorglegt að ærin þjáning fyrirfinnst í veröldinni en í þunglyndi er tilhneiging til að taka ástandið í heiminum nærri sér og mikilvægt að vera meðvitaður um það.

   DÆMI

Sjálfvirk neikvæð hugsun:

  • Þessi sjónvarpsþáttur um stöðu og aðstæður aldraðra var óþægilegur. Lífið er grimmt. Það er ekki sanngjarnt.

Skynsamlegt svar:

  • Hlutirnir eru eins og þeir eru. Að leggjast í depurð bætir ekki úr skák. Hvernig væri að heilsa upp á einhvern eldriborgara? Það er nokkuð sem ég get gert.
Skip to content