HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Forsíða » Meðferðarhandbók » 7. Að breyta neikvæðum hugsunarhætti » Er ég að taka hluti persónulega sem snerta mig lítið eða ekkert?

Er ég að taka hluti persónulega sem snerta mig lítið eða ekkert?

Þegar eitthvað fer úrskeiðis trúir þunglynt fólk því oft að það eigi sök á atburðarásinni eða hún snúist persónulega um það.

Oftast er það þó þannig að við höfum ekkert haft með atburðina að gera.

   DÆMI

Sjálfvirk neikvæð hugsun:

  • Siggu líkar alls ekki vel við mig. Annars hefði hún ekki verið með þessi ónot.

Skynsamlegt svar:

  • Ég er ekki sá eini sem Sigga er ónotaleg við. Hún er alltaf tæp þegar hlutirnir ganga ekki vel og hún „urrar“ á alla sem eru í kring. Ég hef séð það og heyrt. Hún kemst yfir þetta og biðst kannski afsökunar.
Skip to content