Við metum og túlkum atvik og drögum ályktanir á hæpnum forsendum án nægilegra heimilda og getum í eyðurnar. Með öðrum orðum þá gefum við okkur niðurstöður án þess að staðreyndir liggi fyrir. Hjá þunglyndum eru það einkum tvenns konar skyndiályktanir sem eru áberandi, hugsanalestur og hrakspár
Hrakspár: Þegar gengið er út frá því fyrirfram að hlutirnir muni ganga illa..
Hugsanalestur
Ein tegund skyndiályktana er þegar við göngum út frá því að við vitum hvað aðrir eru að hugsa og meina án þess að hafa nokkrar heimildir fyrir ályktunum okkar. Við erum svo sannfærð um að við höfum rétt fyrir okkur að við göngum ekki úr skugga um hvort svo sé.
DÆMI
Þegar Sigga og Halli voru búin að borða komu þau sér fyrir í þægilegri stólum og fengu sér kaffi og konfekt. Eftir stutta stund spurði Halli: „Langar þig að fara eitthvað út á lífið?“ Þá hugsaði Sigga: „Hann nennir ekki að vera einn með mér, því honum finnst ég svo leiðinleg.“
Hrakspár
Önnur tegund skyndiályktana er þegar við göngum fyrirfram út frá því að hlutirnir fari illa og látum eins og hrakspáin sé þegar orðin að veruleika. Okkur líður að sjálfsögðu í samræmi við það.
