HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Uppnefni

Þegar við blöndum saman óréttmætri alhæfingu, neikvæðri rörsýn og allt-eða-ekkert hugsunarhætti þar sem við skilgreinum okkur sjálf og brennimerkjum vegna einstakra athafna eða ófullkomleika þá erum við farin að uppnefna okkur. Ein mistök eða jafnvel frammistaðahelp_outline
Frammistaða/færni: Það hvernig einhver stendur sig. Hvernig gengur að gera hlutina.
 í meðallagi gerir okkur að fíflum, bjánum, aumingjum, ónytjungum, letingjum, kærulausum o.s.frv.

   DÆMI

Morguninn eftir áttaði Sigga sig á því að hún hafði gert of mikið úr hlutunum. Kvöldið var alls ekki misheppnað. Þá hugsaði hún: „Ég hlýt að vera fýlupoki.“ Siggu fannst hún alltaf vera að klúðra hlutunum og hugsaði: „Ég er algjör hálfviti“.
Skip to content