HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Að svara neikvæðum hugsunum

Hér á eftir koma nokkur dæmi um mótrökhelp_outline
Mótrök: Rök á móti, t.d. neikvæðum hugsunum.
 og skynsamleg svör við sjálfvirkum neikvæðum hugsunum.

   DÆMI

Sjálfvirk neikvæð hugsun:

  • Þegar ég hitti Pétur á götu um daginn brosti hann ekki til mín.
    Ég hlýt að hafa gert eitthvað sem móðgaði hann.

Skynsamlegt svar:

  • Það er rétt að hann brosti ekki til mín, en ég hef enga ástæðu til
    að halda að hann sé móðgaður. Líklega hefur þetta ekkert með
    mig að gera. Kannski var hann stressaður og í þungum þönkum
    yfir einhverju.
Skip to content