HANDBÓK UM HUGRÆNA
ATFERLISMEÐFERР

Forsíða » Meðferðarhandbók » 3. Að takast á við vandann » Var þetta árangursrík leið?

Var þetta árangursrík leið?

Að lokum þarftu að spyrja þig hvernig til tókst. Var ákvörðun þín til góðs? Ef ekki, hvað fór úrskeiðis? Getur þú lært eitthvað af þessu?

Mundu að þetta snýst ekki um að takast eitthvað eða mistakast heldur að reyna eftir bestu getu. Ef tilraunin tókst ekki vel þá ertu að minnsta kosti reynslunni ríkari. Svo er bara að reyna aftur og finna fleiri leiðir þar til þú finnur það sem hentar þér.

Hér á eftir koma verkefnablöð sem þú getur nýtt þér við að finna lausnir. Þú getur líka búið til þín eigin!

   VERKEFNI

Athugið: Allar breytingar sem þú gerir í útfyllanlegum reitum vistast ekki sjálfkrafa, svo mundu að hlaða niður eða prenta út áður en þú lokar síðunni.

Skip to content